Heimur Sollu

Wednesday, August 31, 2005

Skóli, ný pragtik og annað

jæja gott fólk, þá er ég komin hingað aftur, ég get þó sagt eitt að sennilega fer ég í skóla eftir áramót. Það er búið að hafa samband við skólann, og ef ég næ dönskuprófinu í desember þá að öllum líkindum kemmst ég inn í skólann í Aarhus. Svo byrja ég í pragtík á elliheimili í Ryomgaard í október, og verð ég þar til skólinn byrjar en það er mjög gott að vera búin aðeins að kynnast þessu áður en ég fer í skólann. Ég er bæði spennt og kvíðin, eins og eðlilegt er, en þetta hljómar allt vel. Það hafa verið smá veikindi í gangi hér, upp og niðurgangur, og svo kvefpestar, það er nú ekki skrítið, því að hitinn er ekki mikill á morgnana, en svo er brjáluð blíða yfir hádaginn og svo aftur kalt á kvöldin. Benedikta er aðeins farin að lesa, hún fær bækur heim, um læsefidusen Carlo sem hún á að lesa í og svo kvittar maður og gefur umsögn. Nú er Alexander orðinn elstur hjá dagmömmunni og er verið að venja hann á að ganga við hliðina á vagninum,og halda í hann. það gengur annars allt bara mjög vel hjá öllum hinum fjölskyldumeðlimunum. Ég er að hugsa um að fara að sofa en til næst bæbæ.

Thursday, August 18, 2005

Úr ýmsum áttum.

Jæja þá er ég sest hér og ætla að reina að pára eitthvað. Ég var að koma úr testi í dönsku og ég stóð mig með stakri príði!!!!!! Húrra fyrir mér, ég var prófuð í málfræði og skilning í lestri. Ég var með í maganum eins og alltaf þegar ég fer í próf, en ég veit ekki afhverju, þetta er bara svo létt að það er óþarfi að hræðast þetta. En svo í annað, það var götufesti hér og var það bara þrælgaman, mér fannst bara vera léleg mæting en ég kynntist þó nágrönnunum hér við hliðina, og eru þau bara hress. Fyrst var drukkið kaffi í laut sem er hér á milli einna húsanna og farið í víkingaspil, sem íslendingarnir urðum húkt á og er bara eftir að kaupa svona spil. Svo um kvöldið var hlaðborð með allskins réttum og hvert hús lagði til einn rétt, og meðalannars þá smökkuðum við í fyrsta sinn kengúrukjöt, sem var borið framm með spes sultu, og smakkaðist það mjög gott. Svo var auðvitað drukkið rauðvín með matnum, og á eftir var skotið nokkrum hot and sveet á röðina, og var maður bara orðinn nokkuð kenndur, en það er bara allt í góðu því það skeður svona í mestalagi einusinni á ári. Kristófer fer svo til Bornholm, í næstu viku og vona ég bara að það verði frábært stuð hjá honum, en verst er að hann snakkar ikke meget dansk, en hann getur bjargað sér smá í Ensku. Það stoppaði helst á að hann færi ekki því hann hefði ekkert hjól, en það er úr sögunni því að þau leigja hjól þarna. Heimasíðan af Benediktu bekk er komin í gagnið og er það fínt, en ég er smá svekkt yfir að það eru engar myndir af bekknum hennar, eins og af hinum bekknum, en vona ég að þær eigi bara eftir að koma. Andrea fór til Hornslet í gær, og gisti svo hjá vinkonu sinni í Rønde í nótt. Meðan ég skrifa þetta er Benedikta í sfo, Alexander hjá dagmömmunni, og Addi í vinnunni, svo að það er bara rólegt hér í augnablikinu, kannski ég fari bara að læra fyrir mánudaginn, ég er aðeins stemmd fyrir því. Ég á annars að fynna eitthvað emne og tala um það fyrir framan bekkinn, og er ég straks komin með í magann út af því, en gangi mér bara vel!! ég held ég fari nú bara að slútta þessu en þar til næst bæó spæó.

Thursday, August 11, 2005

Skólinn byrjaður!!

Jæja, þá ákvað ég að skrifa aftur(loksins) búin að vera ansi löt. Kannski kemur smá leiði í mann, þegar búið er að vera fullt hús af fólki. En nú er daglega lífið byrjað aftur, skólarnir byrjaðir og allt er að falla í venjulegan jarðveg. Kristófer er hér núna og verður í vetur, hann hefur farið tvisvar í skólann og hefur það bara gengið þokkalega, þó að hann skylji ekki neitt. Hann hefur verið með smá hnút í maganum, og er það alveg skiljanlegt, ég væri væri ekki svona brött að fara í nýjan skóla og skylja barasta ekkert. En þetta kemur vonandi fljótt hjá honum, en það sem verra er að þau eru að fara í skólaferðalag til Bornholm, og fara eftir tvær vikur, og honum líst ekkert á það. En það er einn strákur sem hann hefur veri með meðan hann er í skólanum, en svo fær hann auðvitað aukakennslu í dönsku. Benedikta er bara orðin hinsvegar alveg eins og innfædd, talar alveg reiprennandi, og þeir sem vilja fylgjast með þeim í skólanum þá eru þau í 1a og 6a á Thorsagerskole heimasíðu, það er www.thorsager-skole.dk , en heimasíðan fyrir Benediktu bekk er fyrir einhverjar orsakir ekki komin í gagnið, en það verður vonandi fljótlega. Andrea er svo byrjuð í Røndeskole, og held ég að hún sé alveg þokkalega sátt, hún gisti hjá vinkonu sinni núna í tvær nætur en kemur á morgun. Svo erum við að hugsa um að fá okkur bíl svona til að dröslast á, bæði þá léttir það fyrir Adda að fara í vinnuna, og það væri líka gaman að geta skotist eitthvert, út og suður upp og niður. En áður en ég fer að rugla meira þá ætla ég bara að segja bless þar til næst(vonandi fljótlega)bæ bæ bæ bæ bæ