Heimur Sollu

Sunday, July 27, 2008

Veikindi

ég fékk helgarleifi af sjúkrahúsinu, eins og kannski einhverjir vita fór ég í uppskurð því ég hafði blöðru á einum eggjastokknum og hún var fjalægð ásamt stokknum, og svo átti allt að vera gott en þegar ég kom heim eftir aðgerðina sem var daginn eftir, leið mér alltaf ver og ver og var það útaf lofti sem var dælt í mig meðan á aðgerinni stóð. ég gat ekkert sofið um nóttina og var eini staðurinn sem ég gat verið á var að sitja við elhúsborðið, og var ég þar næstum alla nóttina án svefns, morguninn eftir hringdi ég í læknirinn og hann vildi fá mig samstundis og hann var ekki lengi að skoða mig, hann taldi að ég væri með blóðtappa í lunga, og við það að heyra orðið blóðtappi fór mig að svima svo ég hallaði mér uppað Adda. Læknirinn hringdi svo á sjúkrabíl og ég var keyrð uppa randerssjúkrahús. það var tekið blóð og læknirinn sagði að af þeim að dæma væri ég frekar með lungnabólgu. Sýklatalan var yfir 5000, en á bara að vera um 100. nú hófust hinar ýmsu rannsóknir og fékk ég strax sýklalif í æð og saltvatn því matarlöngunin fór alveg ég gat ekki einusinni drukkið vatn, hitinn var líka mjög hár. á mánudaginn síðasta kom læknir til min og sagðist ætla að skoða mig og fór ég í sónar, þar kom fram að ég hafði vökva í maganum sem átti ekki að vera þar, hann sagði að ég þyrfti í skönnun og kom í ljós að það var eitthvað þarna og læknirinn sagði að ég ætti að fara í uppskurð um kvöldið og var það um kl. 9 mér leið vel eftir uppskurðinn og hélt ég að nú væri ég í góðustandi. Það sem var fjarlægt var vökvi úr blöðrunni, ég fékk verkjalif í gegnum hrygginn, ég var ógurleg slöpp eftir þennann umgang en á miðvikudaginn eftir aðgerð leið mér aðeins betur en ógleðin kvarf ekki og var ég bara á salt og sykurvatni í æð svo þið getið rétt ýmindað ykkur hvernig ég lít út. Ég varð líka allltaf daprari og daprari og spurði eina hjúkkuna hvenær ég mætti eiginlega fara heim og hvenær ég lostnaði eiginlega við þetta ógeðslega lyf, en þessi engill sagðist ætla að athuga málið og kom svo á föstudaginn til mín og sagði að ég fengi að fara heim yfir helgina og hún lét mig hafa meðul með sem ég tek þrisvar á dag, en ég á að koma aftur í blóðprufu á mánudagsmorgun. Svo er bara að sjá hvað kemur útúr henni, fæ ég að fara heim aftur eða verð ég lögð inn það er spurningin. ég er óskaplega þróttlaus og verð að leggja mig á hverjum klukkutíma, ég er líka byrjuð að borða reglulega, ekki mikið í einu en það kemur. Ég vil svo þakka öllum þeim sem hringdu hérna reglulega útaf mér, maður sér hvað maður á marga að þegar eitthvað bjátar á ég fæ tárin í augun takk takk takk mín kæra fjölskylda. þette blogg er aðalega tileinkað mer og nú verð ég að fara að leggja mig, skrifa fréttir héðan seinna bless í bili.

Thursday, July 10, 2008

loksins,loksins,loksins


Ég hef bara ekki haft neinn tíma til að skrifa nokkuð hér, því ég hef haft nóg annað að gera. Ég vinn fulla vinnu og svo er það heimilið eftir kl.fjögur, og um helgar er það tiltekt og þessi litli garður sem við höfum hér og skemmtigarðarnir. En núna er ég heima í veikindafríi því að ég fékk slæman verk í kviðinn á þriðjudagsmorguninn og ég fór til læknis sem sendi mig svo til Randers sygehus í rannsókn og það kom í ljós að ég er með stóra blöðru á öðrum eggjastokknum og fer í aðgerð á mánudaginn þar sem hún verður fjarlægð.

Svo er hann Blessaði Garfield okkar dáinn og varð mikil sorg hér á bæ, sérstaklega hjá sjálfri húsmóðurinni, hann var bara einn af trúðum fjölskyldunnar, hann dansaði alltaf fyrir utan svalahurðina þegar hann vildi koma inn. Hann hvarf eina helgina og hélt ég að hann hefði bara farið á kvennaveiðar og hefur hann sennilega verið að því þegar hann varð fyrir bíl á Ryomgårdsvej. Við vorum að fara í Djurssommerland þegar uppgötvaðist að Benidiktu vantaði gleraugun sín og var snúið við og þá sá ég okkar elskulega kött liggja í vegkantinum. Fór jarðarförin fram hér í garðinum og var búinn til fallegur kross og ætlum við að kaupa fallegt tré eða blóm sem við gróðursetjum á leiðinu hans. Blessuð sé minning um þína stuttu ævi elsku Garfield. Ekki áttir þú níu líf varst rétt orðinn ársgamall. þegar líf þitt var tekið.

Fyrir utan þetta er bara allt gott að frétta héðan við erum búin að fara nokkrar ferðir í djurssommerland, og á sunnudaginn komu Andrés og Míra með okkur, og ég afrekaði það að fara í Piraten, þennan stóra rutscíbana og ég argaði svo mikið að ég varð þurr í hálsinum og öll aum og var líka með lokuð augun næstum allan tíman, en gott að þetta er yfirstaðið því nú fæ ég frí fyrir nöldrinu í Adda allavegana í bili. svo höfum við farið í skandinavisk dyrepark, þar eru dýr sem finnast hér í skandinavíu, og eru myndir af þessum dýrum inná barnalandssíðunum ásamt mörgum fleiri, það tók mig kvorki meira né minna en 5-6 tíma að setja myndirnar inná síðurnar enda held ég að það séu um 100 myndir inná hverju albúmi. Anita og Snæþór eru komin til danmerkur og eru búin að fá litla íbúð í Grindsted, en Snæþór er að vinna í litlum bæ nálægt Grindsted sem heitir Starup, svo er maðurinn sem leigir þeim að athuga með vinnu fyrir Anitu í legoverksmiðjunni i Billund, hann vinnur þar og sagði að það vantaði vinnuafl þar og það vantar líka á sjukrahúsið í Grindsted og er verið að athuga með það líka, svo vonandi rætist fljótt úr með vinnu fyrir hana.

Það er skrítið en dáltið þægilegt að vera næstum barnlaus hér heima, en Kristófer og Benedikta eru jú hér en tvö yngstu eru í pössun, svo næ ég í þau um kl. fjögur. Nu sit ég hér í tölvunni og Kristófer er úti að slá því ég má ekki ofgera mér dejligt.

Við höfum líka tvisvar verið boðin í mat til Andrésar og míru og höfum við haft það mjög huggulegt og næs, það er líka alltaf gaman þegar ég þarf ekki sjálf að elda, enda ét ég aldrei eins mikið og þá. Okkur var líka boðið í einsárs afmæli til Isabellu og fengum við ýmislegt góðgætið. mmm þær sem ég vinn með segjast ekkert skilja í því að ég sé ekki feitari því ég get borðað heil ósköp þegar mér er boðið upp á einhverskonar góðgætið enda eru þær duglegar við að koma með kökur og slik í vinnuna sem við borðum svo í pásunum.

einu sinni til tvisvar í mánuði fær Addi stóran pappakassa fullan með ávöxtum og grænmeti sem er alveg nýtt og hann borgar aðeins 200kr. fyrir þetta. það er t.d. stór vatnsmelóna og tveirpokar vínber og hellingur af eplum, plómum, gúrkum, tómötum og káli og bara ýmislegt annað góðgætið.

jæja ég læt þetta gott heita í bili sollan kveður með bros á vör, þið megið hugsa til mín á mánudaginn. FARVEL!!