Heimur Sollu

Wednesday, August 31, 2005

Skóli, ný pragtik og annað

jæja gott fólk, þá er ég komin hingað aftur, ég get þó sagt eitt að sennilega fer ég í skóla eftir áramót. Það er búið að hafa samband við skólann, og ef ég næ dönskuprófinu í desember þá að öllum líkindum kemmst ég inn í skólann í Aarhus. Svo byrja ég í pragtík á elliheimili í Ryomgaard í október, og verð ég þar til skólinn byrjar en það er mjög gott að vera búin aðeins að kynnast þessu áður en ég fer í skólann. Ég er bæði spennt og kvíðin, eins og eðlilegt er, en þetta hljómar allt vel. Það hafa verið smá veikindi í gangi hér, upp og niðurgangur, og svo kvefpestar, það er nú ekki skrítið, því að hitinn er ekki mikill á morgnana, en svo er brjáluð blíða yfir hádaginn og svo aftur kalt á kvöldin. Benedikta er aðeins farin að lesa, hún fær bækur heim, um læsefidusen Carlo sem hún á að lesa í og svo kvittar maður og gefur umsögn. Nú er Alexander orðinn elstur hjá dagmömmunni og er verið að venja hann á að ganga við hliðina á vagninum,og halda í hann. það gengur annars allt bara mjög vel hjá öllum hinum fjölskyldumeðlimunum. Ég er að hugsa um að fara að sofa en til næst bæbæ.

4 Comments:

  • Fráært, Benedikta getur þá lesið fyrir mig næst þegar ég kem :) Bið annars að heilsa öllum og segðu Arnþóri að ég er búin að kommenta á lögin sem hann sendi mér á síðunni hans. þar til næst, bleble

    By Anonymous Anonymous, At 6:54 AM  

  • Það er geðveikt stutt í jólin =)

    By Anonymous Anonymous, At 4:30 AM  

  • Hei farðu að blogga!

    By Anonymous Anonymous, At 4:20 AM  

  • ok geri tad tegar eg kem heim

    By Blogger Sólveig Hjaltadóttir, At 5:10 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home