Heimur Sollu

Thursday, August 11, 2005

Skólinn byrjaður!!

Jæja, þá ákvað ég að skrifa aftur(loksins) búin að vera ansi löt. Kannski kemur smá leiði í mann, þegar búið er að vera fullt hús af fólki. En nú er daglega lífið byrjað aftur, skólarnir byrjaðir og allt er að falla í venjulegan jarðveg. Kristófer er hér núna og verður í vetur, hann hefur farið tvisvar í skólann og hefur það bara gengið þokkalega, þó að hann skylji ekki neitt. Hann hefur verið með smá hnút í maganum, og er það alveg skiljanlegt, ég væri væri ekki svona brött að fara í nýjan skóla og skylja barasta ekkert. En þetta kemur vonandi fljótt hjá honum, en það sem verra er að þau eru að fara í skólaferðalag til Bornholm, og fara eftir tvær vikur, og honum líst ekkert á það. En það er einn strákur sem hann hefur veri með meðan hann er í skólanum, en svo fær hann auðvitað aukakennslu í dönsku. Benedikta er bara orðin hinsvegar alveg eins og innfædd, talar alveg reiprennandi, og þeir sem vilja fylgjast með þeim í skólanum þá eru þau í 1a og 6a á Thorsagerskole heimasíðu, það er www.thorsager-skole.dk , en heimasíðan fyrir Benediktu bekk er fyrir einhverjar orsakir ekki komin í gagnið, en það verður vonandi fljótlega. Andrea er svo byrjuð í Røndeskole, og held ég að hún sé alveg þokkalega sátt, hún gisti hjá vinkonu sinni núna í tvær nætur en kemur á morgun. Svo erum við að hugsa um að fá okkur bíl svona til að dröslast á, bæði þá léttir það fyrir Adda að fara í vinnuna, og það væri líka gaman að geta skotist eitthvert, út og suður upp og niður. En áður en ég fer að rugla meira þá ætla ég bara að segja bless þar til næst(vonandi fljótlega)bæ bæ bæ bæ bæ

6 Comments:

  • Já hæ!!Gott að þið eruð í góðum gír.Bestu kveðjur frá okkur vitleysingunum:)

    By Anonymous Anonymous, At 4:57 PM  

  • Bæ ðö vei þetta er Brynja

    By Anonymous Anonymous, At 4:59 PM  

  • Bíddu ha??? var ég að lesa eitthvað annað blogg en sá sem kommentar hér á undan mér??? carpet-cleaners!!??!?!?! WHAT??

    By Anonymous Anonymous, At 3:50 AM  

  • Ég veit ekki hvað í fj!!þetta er ég held að þetta sé bara eitthvað djók.

    By Blogger Sólveig Hjaltadóttir, At 7:01 AM  

  • blessuð.. ég bíð bara eftir myndum af krökkunum á skólasíðunni =)

    By Anonymous Anonymous, At 1:51 PM  

  • lart mikid

    By Anonymous Anonymous, At 3:31 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home