Heimur Sollu

Sunday, November 26, 2006

Jólin gætu alveg komið á morgun

jæja þá er ég að verða búin að undirbúa jólin og þau gætu bara næstum því komið á morgun. Búin að baka laufabrauðið, með aðalega aðstoð Hölla, svo er ég búin að baka um átta smákökusvortir, og gera hreint í næstum öllum herbergjum, og þá er bara að undirbúa komu nýjafjölskyldumeðlimsins, og núna líður mér bara frábærlega að vera búin með þetta allt, er aðeins búin að þvo svona þetta litla sem ég á á barnið. Núna erum við Benedikta bara einar heim og það eru jólalög í spilaranum að sjálfsögðu og við erum aðeins birjaðar að skreita, ég veit að það er aðeins of snemmt en það er bara svo mikill spenningur í liðinu sérstaklega Benediktu eftir að fá systur sínar hingað. Alexander er búinn að jafnasig á hlaupabólunni og fer hann á morgun í leikskólann. Addi er svo að fara að ljúka síðustu vikunni sinni hjá dansk supermarket og byrjar í nýrri vinnu núna næsta föstudag. Andres og Míra ætla að koma hingað næstu helgi með eplaskífur og ætlum við að hafa smá huggulegt, svo nátturlega eru þau í sveitinni að undirbúa smá huggulegheit í desember með eplaskífum og pakkaleik, þau eru næstum orðin einsog fjölskyldan manns hér úti, nema hvað við umgöngumst þau meira en við gerðum með okkar fjölskyldu heima á fróni. Jæja núna er Addi kominn heim og vill víst fara í tölvuna, svo ég verð bara að segja bless til næst hvenær sem það nú verður :)

Thursday, November 09, 2006

Jólin, jólin aalstaðar með jólagleði og gjafirnar.

hellú gott fólk, við fórum í afmælisveislu þann 28. okt og var það bara magnað og át maður ásig gat bæði af mat og nammi, svo síðasta laugardag fórum við í heimsókn til þeirra í sveitinni í mat og huggulegheit og var horft á hvorki meira en minna en þrjár dvd myndir, svo annað kvöld er okkur boðið þangað í mat því það er Bo's rétti afmælisdagur, er okkur boðið ásamt öðru vinafólki þeirra, þetta á víst að koma honum á óvart. Ég veit ekki hvað maður gerir þegar þau flytja í burtu, þau eru að leita að sveitabýli en held ég hérna á djurslandi, svo það verður kanski ekki svo löng vegalengd á milli okkar, Benedikta mun koma til með að sakna vinkonu sinnar. Ég get nú sagt ykkur það að ég er búin að vera svo svakalega dugleg að gera hreint, og ég er líka búin að kaupa jólagjafirnar sem á að senda til Íslands og þið þurfið ekki að undra ykkur á að þið fáið þær svolítið snemma, ég ætla nefnilega að hafa það náðugt í desember, þegar ég er búin að gera hreint þá tekur baksturinn við og nátturlega laufabrauðið og vona ég að Hölli vilji kannski hjálpa, annars er Benedikta ansi öflug í útskurðinum, hún líkist múttu sinni hvað það varðar, ég elskaði að skera út þegar ég var krakki, og enn í dag finnst mér það gaman en einhver verður víst að fletja út og er það í mínum verkahring. Ég er nú bara að fá svona smá jólafíling í mig, er samt ekki byrjuð að spila jólalögin. Ég hlakkar líka ekkert smáræði til að fá stelpurnar mínar yfir jólin og ekki má gleyma Snæþór, og er mikill spenningur hér á bæ, og svo verður fjölgun í fjölskyldunni, og á það að ske 7. desember en ég veit að það verður ekki fyrr en 21. svo ef þið hafið hugsað ykkur að gefa barninu gjafir þá verður það bara að vera fyrir bæði kynin, því ég hef ekki hugmynd kvort kynið það verður, ég var hjá ljósmóðurinni áðan og spurði hún hvort ég vildi fara heim strax eftir fæðingu eða vera á hótelinu og að sjálfsögðu vil ég vera á hótelinu og láta stjana við mig án þess að borga, er nokkuð til magnaðra?? Það er ekki oft sem ég get látið stjana við mig svo því ekki að nota tækifærið. Á laugardaginn á svo stubburinn minn afmæli og er ég að spá í að hafa smá kaffi honum til heiðurs, orðinn þriggja ára, fljótur er tíminn að líða maður minn, tvö ár og tveir mánuðir síðan við fluttum hingað út og var hann þá bara smábarn. Jæja nú fara hávaðabelgirnir tveir að koma heim, og þá meina ég Benediktu og Katharinu, það þyrfti stundum að sétja hljóðkút á þær svo mikill er hávaðinn. Hef þetta bara gott í bili en til næst bbbbllllleeeeessss.