Heimur Sollu

Tuesday, January 17, 2006

Leitin að vinnunni.

Við Addi sátum fyrir framan tölvuna í gær og vorum að pikka út vinnur sem eru hér í nágrenninu og henta mér, og er ég búin að senda í um níu umsóknir. Vona ég bara að þetta beri árangur, svo ætla ég að kíkka á netið í dag og kanna hvort hafi eki komið einhver fleiri job inn. Ég, Alexander og Patti erum ein heima í augnablikinu, en ég bíst við Kristófer heim fljótlega, hann er búinn að vera veikur með hósta og höfuðverk. Alexander er líka búinn að vera veikur með mjög slæman hósta. Andrea fer núna á fimmtudaginn og fær spangir, sem hún þarf að hafa í um tvö ár og svo þarf hún að mæta þar reglulega og láta herða heila klabbið(best að gera þetta hér því það kostar ekki neitt fyrir okkur). Annars höfum við það bara þokkalegt, miðað við allt. jæja nú ætla ég að fara að kíkka á fleiri job og svo náttúrlega að hugsa um gemlingana mína tvo,Patti er alveg á fullu við að naga það sem hann má ekki naga og Alexander er duglegur að bera í hann dótið sitt og annarra, svo ég hef alveg fulla vinnu við að passa þá drengi. Nú ætla ég að hætta í bili bless til næst.

2 Comments:

  • já, þeir eru góðir saman, Patti og Alex.. Alex réttir Patta allt sem hann má EKKI naga og Patti nagar það.. hahaha

    By Anonymous Anonymous, At 5:24 AM  

  • Hahaha, það finnst mér mjög fyndið=) En það er ekki eins sniðugt að hann sé byrjaður á ljótu orðunum!!! En gangi ykkur vel með grísina 2 og hina 3 líka =)

    By Anonymous Anonymous, At 7:11 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home