Heimur Sollu

Sunday, September 25, 2005

Klukk!!!!

Ég veit ekki hvernig ég á að koma mér út úr þessu, ég man ekki eftir neinum furðuhlutum um mig. Svo er búið að klukka alla sem ég þekki þannig að ég veit ekki hvern ég á að klukka.
En ég ætla að reyna. Þeir sem ekki vita út á hvað þessi leikur gengur, þá áttu að segja frá fimm furðulegum staðreyndum um þig, og klukka svo fimm aðra.
1. Ég er mjög myrkfælin, og þegar ég er ein hér frammi þá kveiki ég ljósið í eldhúsinu fer svo og kveiki inn á baði og þegar ég fer að sofa þá slekk ég á eftir mér, og slekk svo seinast á baðinu því það er við herbergið okkar.
2. Ég tala mikið við sjálfamig, og oft verð ég að passa mig þegar ég er annarstaðar, svo að fólk haldi ekki hreinlega að ég sé eithvað klikk.
3. þegar ég tek Bussen, þá verð ég helst alltaf að sitja við hurðina afturí, ég veit ekki afhverju en það er bara besta sætið, og ef einhver situr þar þá er ég ekki neitt sérstaklega ánægð.
4. Verð hreinlega veik ef ég er að fara að byrja á einhverju nýju, einsog ég er að fara að byrja í nýrri praktík, og svo sótti ég um skólann allt á sama deginum, og ég get svarið það að ég var alveg búin eftir þetta. Bara tilhugsunin.
5. Þá er það fimmta og og síðasta, ég er alveg skelfilega lofthrædd, og þarf næstum að hafa öryggislínu þegar ég stíg upp á stól. Ég vona að þetta sé nógu furðulegt fyrir ykkur.

Ég ætla að klukka Silju, Sonju, Agnesi, Ástu Mekkin og Míru.

4 Comments:

  • Hahaha... þegar þú segir að þú talir mikið við sjálfa þig.. þá minnir það mig á eitt... ég var búin fyrr í skólanum og fór beint heim... svo ákvað ég aðeins að stríða þér og stökk bakvið sófann (hornsófi) með sjónvarpsfjarstýringuna!! svo komst þú heim, og hafðir ekki hugm. að þú værir ekki ein og byrjaðir á því að bölva snjónum og svo tókstu póstinn og bölvaðir honum... og svo komstu inn í stofu, kveiktir á TV og þá byrjaði fjörið... ég skipti um stöð og þú auðvitað alveg gáttuð og byjaðir að tala við sjálfa þig á fullu: (hvað er að gerast???) og varst eitt spurningamerki... svo skipti ég aftur... og þá varstu sko hrædd og byrjaðir að bölva í hljóði þangað til ég stökk upp og gerði þig SKÍTHRÆDDA... þá bölvaðiru mér!!!! hahahahahaha

    By Anonymous Anonymous, At 3:05 PM  

  • Vá hvað þessi leikur er að leiða í ljós að allir eru meira og minn nutcase!! Ég var að skrifa á síðuna mína en var búin að gleyma hvað þetta er óþolandi þetta blog.central og það strokaðist nottla allt út. Geri aðra tilraun síðar...
    Kveðja til ykkar allra í Konungsríkinu.
    Ásta Mekkín

    By Anonymous Anonymous, At 7:19 AM  

  • Hæ hæ,
    ég var bara að taka eftir þessu núna á síðunni minni hehe :D
    Sendi bara kveðjur úr Svarfaðardalnum og hafiði það sem allra best í Denmark. Kv. Silja

    By Anonymous Anonymous, At 3:48 PM  

  • Hæhæ:)!!! Ég er komin með nýtt blogg, sem er: www.blog.central.is/miracle1981 !!! Knus, Mira:)

    By Anonymous Anonymous, At 12:00 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home