Heimur Sollu

Wednesday, July 27, 2005

gestir!!

Jæja það er langt síðan síðast. En þegar eru gestir hjá manni þá er maður bara ekki mikið við tölvuna. Anna Sigrún og Gunni eru að ég held í Þískalandi, en þau koma aftur hingað um helgina held ég. Annars er ekkert ákveðið, Agnes og Guðlaug koma á morgun, seinnipartinn og ætlum við að fara á lestarstöðina til að taka á móti þeim. Það verður svo fjör hér eftir helgi, því Aldís Lóa kemur í heimsókn með mömmu sinni. Og vonumst við til að Andrés geti gert sér ferð hingað uppeftir og hitt þær, og þá yrðu þau öll Benediktsbörnin hér, ég verð að gera eitthvað í tilefni þess. En að öðru, við gáfum Benediktu trampolín í afmælisgjöf og held ég að allir fjölskyldumeðlimir njóti þess, að hoppa sig þreytta nema kannski ég. Ég er svo lofthrædd að ég þori varla uppá það, en ég get vel legið í sólbaði á því(það er fínt til þess). Núna eru Benedikta og Addi sofandi í sófanum, og Alexander er inní herbergi sofandi að sjálfsögðu, svo að ég sit bara við tölvuna og nýt þess í botn. í öllum leikjunum á netinu, þið ættuð að prófa bubbles þá farið þið ekki aftur frá tölvunni, en samt er ég núna að hugsa um að fara að sofa, klukkan hjá mér er að ganga tvö. svo til næst bbbllllllllleeeeeeeeeessssssssssssssssssssss.

1 Comments:

  • Tak for os....!!!! þetta er búið að vera rosalega fínt hérna, enginn er eins duglegur að baka eins og þú!!!!! takk bara kærlega fyrir frábærar móttökur :)

    By Anonymous Anonymous, At 1:16 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home