Haglél í júlí !!!!!!!!!!!
Það dimmdi snögglega hér aðan og skyndilega drundi í öllu húsinu, ég helt að það væri svona mikil rigning. Fór út að glugganum og sá að þetta var hagl, og það mikið, svo á eftir kom elding og stór og drungaleg þruma. Þetta var og er skrítið að sjá svona um mitt sumar, svo hljóðnar allt í smá stund og svo koma þrumurnar, eldingarnar og haglið eða rigningin aftur. Þetta er óhugnalegt veður.En bara að leifa ykkur að vera með í upplivuninni. kv.til næst bæææææææææ.
1 Comments:
cool... mig langar að upplifa svona.... þetta er bara snilldin ein
By Anonymous, At 5:13 AM
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home