Heimur Sollu

Sunday, June 12, 2005

Aníta kemur á morgun!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hæ!!!!
jæja, hún Aníta okkar er bara að koma á morgun, og það er mikill spenningur í liðinu, þó sérstaklega í stelpunum. Þær eru með dagatal sem þær krota í við hvern daginn sem líður, en nú er biðin á enda. Andrea fær þó ekki að sjá hana fyrr en á föstudaginn, því hún er að fara í skólabúðir sem eru á fjóni, og hún fer á morgun. þau fara með lest til Nyborg, og hjóla þaðan til Kerteminde, en það heitir staðurinn, sem þau verða á. Benedikta fer í smá ferðalag 22.júní með sfo, til Silkiborgar, og þau verða þar í tjaldbúðum í tvo daga. Alexander gerði mömmu sína ekkert smá skelkaða í gær. Við vorum í búðinni, og aldrei þessu vant þá var hann ekki í kerrunni, ég var við kassann og sleppti aðeins af honum hendinni, og fyrr en varði þá var hann horfinn. Viti þið hvert hann var kominn? hann var kominn út!!!! en sem betur fer stóð hann þar bara stjarfur. (það er nefnilega stór umferðargata öðrumegin, og bílastæði hinumegin) svo þið getið rétt ýmindað ykkur hvernig mér varð við, ég er varla búin að jafna mig. Addi er að öllum líkindum búinn að fá vinnu, en þið megið alveg krossleggja fingurnar fyrir hann, því að það hefur alltaf eitthvað brugðist. En við bara vonum það besta. Núna ætla ég að fara að hitta þá feðga niður við búð, þeir skruppu nefnilega til Rønde. bless í bili !!!!!!!!

1 Comments:

  • Ja eg krosslegg fingurna... Segdu anitu annars ad eg tek bara skona med mer til islands og hun getur sott tha thegar hun kemur til baka.. ok.. skemmtid ykkur og vid sjaumst i juli

    By Anonymous Anonymous, At 12:45 PM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home