Heimur Sollu

Monday, December 25, 2006

Jólakveðja

Gleðileg jól allir vinir og kunningjar nær og fjær og vonandi hafið þið það gott bæði um jól og áramót, eins og fyrr hefur komið fram höfum við takmarkað jólakortasendingar til vina okkar en það er ekki þarmeð sagt að við höfum gleymt ykkur, einsog flestir vita kanski vorum við að eignast litla dóttir og við komum heim í gær fyrst, svo mér hefur ekki gefist tími til að rita neitt fyrr en nú og biðst ég bara velvirðingar á því, en enn og aftur Gleðileg jól og borðiði á ykkur gat einsog ég ætla að gera, því nú er ég sko komin með listina aftur (gat ekkert orðið borðað trúi ég útaf stressi) jólastressi en þurfti þess ekki því ég hef svo góða hjálpara hér sem voru bara búin að gera allt svo ég þurfti næstum ekkert að gera þegar ég kom heim (heppin ég)svo erum við búin að skýra skvísu og heitir hún Hannah Christina og er hún með heimasíðu á barnalandi og er slóðin http://hannastina.barnaland.is
og er öllum velkomið að kikja á það. Svo vil ég bara þakka fyrir allar sendingarnar til okkar og pakkana hangikjöt, hákarl og fiskinn og bara allt þúsund þakkir. Jólakveðjur til allra frá mér og öllum hinum.

1 Comments:

  • Hæ Solla og til hamingju með nafnið á stelpunni mjög flott nafn.
    Ég vildi bara segja gleðilegt nýtt ár ég veit ekki alveg hvort ég nenni eitthvað í tölvuna fyrir áramót aftur ég er svo lítil tölvukona:)En enn og aftur til lukku með dömuna heyrumst á nýju ári.....Kveðja Helga Maren og coið

    By Anonymous Anonymous, At 4:44 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home