Heimur Sollu

Tuesday, May 23, 2006

hitt og þetta.

Ég er bara alveg lost veit ekkert hvað ég á að skrifa hér, Alexander fór í ferðalagið og fannst bara alveg frábært fann ekkert fyrir því að vera án mömmu í svona eina nótt, þau hefðu samt mátt vera heppnari með veður, það var rigning með smá sólarglætu svona annarslagið. Við náðum svo í hann til Grenaa og það var mjög gott veður þegar við komum þar, heppin hittum akkúrat á eina sólarglætuna, svo geystumst við heim og mín bakaði nokkrar kökur með hjálp Kristófers því honum fannst asnalegt að ég skyldi gera það svona á sjálfan afmælisdaginn(heppin verður sú stúlka sem hremmir hann)svo vil ég þakka þeim sem sendu mér kveðjur! TAKK, TAKK, TAKK. Ég ætla svo að nota tækifærið og óska öllum apríl og maí afmælisbörnum til hamingju, ég sendi að vísu einhverjum sms en þeir sem ekki hafa fengið kveðjur TILLYKKE med fødselsdagen. Ég er bara ein heima með hundinum, það er bara þriggja daga vinnuvika í þessari viku frí á fimmtudag og föstudag því að dönum finnst asnalegt að vera bara í fríi einn dag og því er frí líka á föstudag(lllöööööönnnnnng helgi)en samt ekki hjá mér ég verð að öllum líkindum að vinna um helgina. Ég hef svo eiginlega sagt upp vinnunni, því ég varð frekar fúl einn daginn þegar ég var í vinnunni, það var einn sunnudaginn að ég var beðin um að vinna og byrjaði ég kl. sex um morguninn svo átti ég að taka eitt herbergi þar sem fólk gisti aðra nótt, ég var búin með morgunvinnuna kl. níu og ætlaði svo að grípa tækifærið og þrífa herbergið meðan liðið færi í morgunmat, en ég beið og beið svo kl. ellefu komu þjónarnir upp með morgunmatinn og kl. hálf tólf bankaði ég á hurðina og spurði hvort þau vildu að ég gerði hreint, maðurinn sagði já það væri allt svo drullugt og hann sagðpi mér að koma eftir svona klukkutíma, þá var nú fokið í mína, þannig að ég sendi oldfrunni sms og sagði að ég nennti þessu ekki að sitja bara og bíða án þess að fá laun, en hún sagði að ég fengi jú laun, samt veit ég ekki hvort ég fæ laun fyrir þetta þegar maður tekur pásur þá fær maður engin laun og ég komst ekki inn á þetta herbergi fyrr en kl. tvö þannig að ég beið í fimm tíma bara eftir aðeins einu herbergi. Ég held að ég hætti þessu kvarti, við Lise erum í gang með fyrirtækið og erum búnar að ganga á milli verslana og fyrirtækja með auglísingar, við höfum gert tilboð í tvennt og vona ég bara að þeir taki tilboðinu svo höfum við verið spurðar um heima aðstoð og hreyngerningar í sumarhúsum. Þá að öðru ég verð nú að segja það, að eftir eurovision keppnina skammast ég mín eiginlega fyrir að vera íslendingur ég á bara ekki orð yfir þessa manneskju, þið skulið vanda valið betur næst. Benedikta gisti hjá Katharina í sveitinni um helgina og henni fannst það náttúrlega alveg frábært, þetta er algjör paradís fyrir börn þau eru með marga hunda og pokabirni og ketti og mýs og ég veit ekki hvað, við fórum með Alexander þangað og hann fæst ekki heim aftur, það er svo margt sniðugt þarna. Andres gisti hérna í nótt og fór svo með Adda í morgun þegar hann fór í vinnuna. jæja þetta er orðið ansi langt blogg og ég bara vissi ekkert um hvað ég átti að skrifa. Það eru bara allir við hestaheilu. nú ætla ég að fara að slútta þessu svo bið ég ykkur bara vel að lifa hej hej til næst.

4 Comments:

  • Silvia Night!!!! hehe já, þetta var djók sem gekk allt of langt... en samt gott lag =)

    By Anonymous Anonymous, At 5:51 AM  

  • Illa samið lag með lélegum texta flutt af innilega vonlausum grínista og enn verri söngvara.

    By Blogger Arnthor, At 11:36 AM  

  • Oj ég er ömurleg!!!!! Gleymdi afmælinu þínu!!!! Ég vissi reyndar allan 19. að það ætti einhver afmæli þann dag sem ég þekkti og var alveg að gera sjálfa mig brjálaða á að hugsa um hver það væri.... eeeen betra er seint en aldrei.. til hamingju með afmælið Sollu dúllan mín :)

    By Anonymous Anonymous, At 5:40 PM  

  • Til hamingju mað afmælið Solla Mæja mín,ég man aldrei afmælisdaga er heppin að muna minn og minna nánustu,gott hjá ykkur með fyrirtækið vonandi gengur þetta upp..Já og Sylvía Nótt við skulum ekki tala um það einu sinni gleymum því bara:)Hafið það gott....KV.Helga Maren og co..

    By Anonymous Anonymous, At 3:42 AM  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home